Sumarskautaskóli LSA 8-14 júní

Skráningar í skautaskólann fara fram á iba.felog.is

thjalfari@listhlaup.is

Skautaskóli listhlaupadeildar býður upp á 5 daga námskeið fyrir stelpur og stráka frá 4 ára aldri . Námskeiðið fer fram   8 – 14. júní ( frídagar laugardag og sunnudag).

Þátttakendur raðast niður í hópa eftir því hvort um er að ræða byrjendur/styttra eða lengra komna. 

Námskeiðið inniheldur :
1x - 2x ístíma (alla daga) : Grunnskautun , jafnvægisæfingar , stökk tækni , píróettur

1x af-ís (fjóra daga vikunnar ef veður leyfir verður hann kenndur úti) : Styrking – Jafnvægis- æfingar – þol – liðleiki. Fjölbreyttar æfingar á hverjum degi.

1x í viku er fræðsla fyrir nýja

2 x í viku er fræðsla fyrir þá sem eru lengra komnir

Nestispása: Óskað er eftir að krakkar hafi með sér hollt og gott nesti alla daga.

Klæðnaður : Hlaupabuxur, hettulausar peysur/jakkar, fingravettlingar (nauðsynlegt að hafa aukapar) ,íþróttaskór, stílabók og liti, vatnsbrúsi og skautar. Gott er að hafa auka peysu ef af-ís æfingarnar verða úti.
Ef barn á ekki skauta er velkomið að fá lánaða á meðan námskeið stendur yfir

Námskeiðið er kennt frá klukkan 9 – 12 á daginn fyrir byrjendur og styttra komna 
Fyrir lengra komna er kennt frá klukkan 9 – 13 á daginn.

Skráningar fara fram í Nora og þarf að ganga frá skráningu fyrir 2.júní . Vikan kostar 8.000 kr. fyrir styttra komna/byrjendur en 10.000 kr. fyrir lengra komna. Sjá á heimasíðu Listhlaupadeildar: http://www.sasport.is/listhlaup

 

Vinsamlegast sendið fyrirspurnir og  í hvaða hóp þið eigið að skrá ykkar barn á yfirþjálfara Kristínu Helgu Hafþórsdóttur á thjalfari@listhlaup.is

Ítarlegar upplýsingar um markmið okkar fyrir báða hópa:

Markmið okkar er að gefa nýjum iðkendum kost á að kynnast íþróttinni okkar og læra þann grunn sem er nauðsynlegur fyrir listdans á skautum ásamt því að vera góður grunnur fyrir aðrar íþróttir. 
Á af- ís verður einblínt á styrkingu – liðleika – snerpu – leiki – upphitun fyrir ístíma er kennd og margt fleira. Markmið með að bjóða upp á fræðslu er að hvetja hvern og einn til að tjá sig og sýnd verða myndbönd til fróðleiks, skautamyndir litaðar og margt fleira sem aldrei hefur áður verið boðið upp á fyrir þennan aldur.

Markmið okkar fyrir lengra komna er að gefa þeim kost á að komast enn frekar nær því tækifæri að komast upp í keppnisflokk C og verða æfingarnar útfærðar frá reglum Skautasambands Íslands og unnið í kringum aðalatriði sem þarf til að fá prógram (dans). 
Á af ís verður styrkur – snerpa – liðleiki – stökktækni – jafnvægisæfingar ofl í fyrirrúmi, auk þess að upphitun fyrir ísæfingar verður tekin fyrir. Í fræðslu verður það markmið að við kynnum fyrir þeim nælukerfið og hvað þarf til að ná getustigi til að mega keppa á C móti fyrir hönd Skautafélags Akureyrar. Auk þess verður farið yfir reglur skautara, uppbygging sjálfstrausts, myndbönd verða sýnd til fróðleiks, kennt verður að setja sér raunhæf markmið og margt fleira.