Sunna og Jóhann íshokkífólk ársins 2020 á Íslandi

"Sunna lék með Skautafélagi Akureyrar um árabil þar til hún flutti til Svíþjóðar og hefur leikið þar undanfarin misseri með Sodertelje SK og IF Troja-Ljungby með framúrskarandi árangri.

Sunna var valin í landslið íslands 2020 sem tók þátt í heimsmeistaramóti kvenna sem haldið var á Akureyri í febrúar 2020. Sunna var ein af lykil konum liðsins og skoraði 5 mörk og átti 4 stoðsendingar. Landslið Íslands lenti í öðru sæti á mótinu og fékk silfurverðlaun.

Sunna er einstaklega jákvæð, góður liðsfélagi og er fyrirmynd margra yngri iðkennda. Sunna hefur sýnt það að hún er liði sínu og landsliði ávallt til sóma hvort sem það er í leik eða utan hans.

Jóhann Már hefur leikið með Skautafélagi Akureyrar um árabil og unnið fjölda Íslands- og deildarmeistara titla. Árið 2020 var Jóhann Már lykilmaður í meistaraflokksliði Skautafélags Akureyrar og átti fjölda marka auk stoðsendinga.

Jóhann Már hefur einnig átt sæti í landsliðum Íslands til fjölda ára. Hann hefur tekið þátt í öllum landsliðsverkefnum og er þekktur fyrir vinnusemi, frábær liðsfélagi og er fyrirmynd margra yngri iðkennda."

Skautafélag Akureyrar óskar þeim Jóhanni og Sunnu innilega til hamingju með valið.