Tap fyrir Litháum

Leikurinn við Litháa byrjaði geysivel og drengirnir okkar leiddu 1-0 eftir fyrsta leikhluta, eftir tvo var staðan 1-2 Litháum í vil og ennþá allt opið en í þriðja leikhluta gékk allt á afturfótunum.

Eftirfarandi er fengið af vef ÍHÍ:

---------------------------

Í kvöld spilaði Íslenska landsliðið við Litháen í næst síðasta leik liðsins á mótinu. Strákarnir héldu uppteknum hætti frá síðasta leik og börðust eins og ljón frá fyrstu mínútu. Á 7. mínútu leiksins dró til tíðinda þegar fyrirliði liðsins, Birkir Árnason tók pökkinn fyrir aftan sitt eigið mark og fór coast to coast og skoraði eftir að hafa stungið alla leikmenn Litháenska liðsins af.

Fleiri mörk voru ekki skoruð í lotunni og því staðan 1 0 þegar 2. lota hófst. Eitthvað hefur verið lesið yfir þeim erlendu á milli lota því þeir mættu dýrvitlausir til leiks og réðu lögum og lofum allar 20 mínúturnar. Sem dæmi um lætin þá skutu Litháar alls 23 sinnum á íslenska markið án þess að nokkurt einasta kæmi frá íslenska liðinu. Íslensku strákarnir stóðu sig engu að síður frábærlega í vörninni og börðust á hæl og hnakka en fengu engu að síður á sig tvö mörk, sem þó verður að teljast lítið eins og lotan spilaðist.

3. lotan var í járnum framan af en það voru Litháar sem bættu við sínu 3. marki á 7. mínútu lotunnar. Gauti Þormóðsson minnkaði svo muninn nokkrum sekúndum síðar eftir sendingar frá Úlfari og Emil, og staðan hélst 3 -2 alveg fram á 17. mínútu og gríðarleg spenna í leiknum. Þá gerðist atvik sem telja verður vendipunkt í leiknum. Emil Alengard sendi langa stungusendingu fram á Gauta Þormóðsson sem komst einn í gegnum í vörn andstæðinganna en á honum var brotið og dæmt víti.

Vítið tók Emil Alengard og allt ætlaði um koll að keyra í höllinni. Ekki tókst Emil að skora en í staðinn óðu Litháar upp strax eftir uppkast og skoruðu og breyttu stöðunni í 4 2. Við þetta datt allur botn úr leik íslenska liðsins og Litháar gengu á lagið og skoruðu 3 mörk á síðustu þremur mínútunum, lokastaðan 7 2.

Þrátt fyrir þetta tap geta drengirnir borið höfuðið hátt og við getum verið stolt af þeim. Þarna áttu þeir í fullu tré við fyrrum sovétríki með langa hokkíhefð og þessi úrslit sýna vel hve miklar framfarir hafa orðið á íslensku hokkí á undanförnum árum.

---------

Stutt yfirlit um leikinn fer hér á eftir (frá IIHF)

Lithuania -Iceland
Shots29.17%
24
Saves86.67%
13
PIM
10

7 - 2
( 0 - 1 , 2 - 0 , 5 - 1 )
Period 3 Ended

Shots13.33%
15
Saves70.83%
17
PIM
28
[Line ups] [Help] [Actions]

Third Period
59.522 min Iceland 24. ALENGARD, EmilBoarding
59.5210 min Iceland 24. ALENGARD, EmilMisconduct
58.597 - 2 PP1Lithuania 17. KAZLAUSKAS, Deividas
(22. VISOCKAS, Algimantas)
(19. KUMELIAUSKAS, Donatas)
58.232 min Iceland 12. ERICSSON, PatrickCharging
58.096 - 2 EQ Lithuania 22. VISOCKAS, Algimantas
(17. KAZLAUSKAS, Deividas)
(19. KUMELIAUSKAS, Donatas)
57.415 - 2 EQ Lithuania 19. KUMELIAUSKAS, Donatas
(17. KAZLAUSKAS, Deividas)
(11. TAMKEVICIUS, Paulius)
55.424 - 2 EQ Lithuania 22. VISOCKAS, Algimantas
(19. KUMELIAUSKAS, Donatas)
55.22PS MissIceland 19. VIDARSSON, Thorhallur
50.412 min Iceland 22. BJARNASON, Vilhelm MarTripping
47.513 - 2 EQ Iceland 11. THORMODSSON, Gauti
(3. ANDRESSON, Ulfar Jon)
(24. ALENGARD, Emil)
47.133 - 1 PP1Lithuania 22. VISOCKAS, AlgimantasGame Winning Goal
(11. TAMKEVICIUS, Paulius)
46.452 min Iceland 12. ERICSSON, PatrickHooking
42.432 min Lithuania 5. VEZELIS, JustinasHooking
Second Period
38.572 min Iceland 15. GRETTISSON, SteinarCharging
31.462 - 1 EQ Lithuania 14. VERENIS, Povilas
(7. IVANUSKIN, Sergej)
(16. KUMELIAUSKAS, Tadas)
28.242 min Lithuania 8. VISOCKAS, ArturasHooking
24.452 min Iceland 24. ALENGARD, EmilHighsticking
23.071 - 1 PP1Lithuania 11. TAMKEVICIUS, Paulius
(19. KUMELIAUSKAS, Donatas)
(17. KAZLAUSKAS, Deividas)
22.242 min Iceland 19. VIDARSSON, ThorhallurElbowing
First Period
17.342 min Lithuania 17. KAZLAUSKAS, DeividasHighsticking
16.492 min Lithuania 9. LUKOSIUS, TomasTripping
7.452 min Iceland 12. ERICSSON, PatrickInterference
6.490 - 1 PP1Iceland 4. ARNASON, Birkir
(24. ALENGARD, Emil)
(11. THORMODSSON, Gauti)
6.042 min Lithuania 8. VISOCKAS, ArturasDelaying the game
2.012 min Iceland 7. GUDMUNDSSON, GunnarCross-checking
00.00GK inLithuania 1. KUZMICIUS, Arturas
00.00GK inIceland 1. SKULASON, Omar Smari