Tap í öðrum leik Víkinga í Continental Cup

KHL Sisak fór með sigurinn úr leiknum í dag en þrátt fyrir nokkuð jafnræði í leiknum framan af náðu Krótatarnir fjögurra marka forystu um miðja aðra lotuna sem reyndist okkar mönnum of mikið til að brúa og lokatölur 6-2. Sisak var með 41 skot á mark á móti 28 skotum Víkinga og Jakob varði 25 skot í markinu og var maður leiksins hjá Víkingum. Andri Mikaelsson og Birkir Einisson skoruðu mörk Víkinga í leiknum. SA mætir Eistnesku meisturunum í Tartu Valk á morgun en Víkingar geta náð öðru sætinu í riðlinum með sigri en leikurinn hefst kl. 16:30 á íslenskum tíma.
 
Mörk og stoðsendingar Víkinga:
Andri Már Mikaelsson 1/0
Birkir Einisson 1/0
Jóhann Már Leifsson 0/1
Baltasar Hjálmarsson 0/1
Andri Freyr Sverrisson 0/1