Þrjú gull og Íslandsmeistaratitlar á RIG

Gullin þrjú (mynd: iceskate.is)
Gullin þrjú (mynd: iceskate.is)

Listhlaupadeild Skautafélags Akureyar tryggði sér þrjú gullverðlaun og 3 Íslandsmeistaratitla á seinni keppnisdegi skautamóts Reykjavíkurleikanna. Freydís Jóna vann gull í Advanced Novice flokk og Sædís Heba Guðmundsdóttir varð í öðru sæti. Júlía Rós setti persónulegt met í Junior flokki með 128.37 stig og Aldís Kara setti Íslandsmet í Senior flokki með 123.44 stig.

Eins og fram kemur á heimasíðu Skautsambands Íslands þá leiddi Freydís Jóna eftir fyrstu keppnisdag og opnunarstökksería var þriggja stökka með tvöföldum Axel, hálfu Loop, tvöföldu Salchow og strax á eftir annar tvöfaldur Axel en því miður föll í báðum. Það hins vegar gaf henni bara meiri byr í seglin og negldi hún restina af prógraminu með 54,93 stigum og í heildina 83,67 og tryggði henni gullið og Íslandsmeistaratitilinn.
Sætisröð breyttist ekkert frá laugardeginum en auk Freydísar Jónu Jing Bergsveinsdóttur varð önnur Akureyrarstúlka í öðru sæti, hin 12 ára Sædís Heba Guðmundsdóttir.  

Júlía Rós skautaði síðust í junior flokk en hún leiddi flokkinn með 11 stiga forskot frá fyrri deginum og því nokkuð ljóst að erfitt yrði að skáka henni. Hún skautaði sitt prógram við tónlist úr Carmen og opnaði með glæsilegu þreföldu Salchow í samsetningu með tvöföldu Toeloop og svo strax á eftir tvöfaldan Axel og síða annað þrefalt Salchow. Spinnar voru hnökralausir og vel miðjaðir og stökkin sem á eftir komu góð með einu falli. Stigin fyrir prógramið 82,50 og 128,37 í heild. Persónulegt stigamet hjá Júlíu Rós. Glæsileg frammistaða hjá þessum efnilega skautara frá SA og Íslandsmeistaratitillinn í hús 

Síðasti keppandi dagsins var Aldís Kara Bergsdóttir úr SA. Töluverð eftirvænting var eftir að sjá hana spreyta sig í senior flokki eftir tvö velgengnisár í Junior flokki. Aldís Kara er afar sterkur skautari og snörp og hóf leikinn með þreföldu Salchow í þriggja stökka seríu með tveimur tvöföldum stökkum, strax á eftir tvöföldum Axel og síðan þreföldu Toeloop í samsetningu með tvöföldu stökki. Seinna bætti hún um betur og lagði annað þrefalt Salchow. Stigin urðu 82,51 og í heildina 123,44 og bætti bæði Íslandsmetið í frjálsu prógrami sem og heildarstigin en fyrri met átti Margrét Sól Torfadóttir frá árinu 2018.
Allt gekk upp hjá Aldísi í dag og eftir glæsilega frammistöðu í Senior hér verður gaman að fylgjast með henni, í vonandi náinni framtíð, þegar hún fer að reyna við lágmörk inn á stórmót erlendis.
Aldís Kara Bergsdóttir, SA, er Íslandsmeistari 2020 í Senior og með gull á Reykjavíkurleikunum 2021 í ofanálag.
Hún fékk einnig Úrslitaverðlaun RIG (Best Results) en þau eru veitt stigahæsta skautara í efsta flokki á mótinu. Sannarlega glæsilegur árangur.

Við óskum öllum okkar keppendum til hamingju með frábæran árangur.