U20 íshokkílandsliðið hefur keppni á HM í Serbíu í dag

Íshokkílandslið U-20 hefur keppni í dag á heimsmeistaramótinu í 2. deild B sem fer fram í Berlgrad í Serbíu. Ísland mætir Hollandi í dag í fyrsta leik sínum en leikurinn hefst kl. 14.30.

Ísland er í riðli með Hollandi, Belgíu, Serbíu og Króatíu. Fylgjast má með stöðunni í mótinu og dagskránni á heimasíðu alþjóða íshokkísambandsins. 11 leikmenn úr SA eru í liðinu en fjórir þeirra leika með félagsliðum erlendis í dag.

Leikmenn SA:

Alex Máni Sveinsson

Arnar Helgi Kristjánsson

Atli Þór Sveinsson

Baltasar Ari Hjálmarsson

Heiðar Gauti Jóhannsson

Helgi Þór Ívarsson

Ormur Karl Jónsson

Róbert Máni Hafberg

Uni Steinn Sigurðarson Blöndal

Unnar Hafberg Rúnarson

Heiðar Gauti Jóhannsson