Upplýsingar um erlend mót

Krullan komin á Facebook. Upplýsingar um hin ýmsu krullumót erlendis berast reglulega til Krulludeildarinnar. Reynt hefur verið að setja inn upplýsingar á sérstaka síðu hér á krulluvefnum (sjá í valmyndinni hér til hliðar). Nú hefur sá sem þetta ritar ákveðið að gera tilraun til að safna saman slíkum upplýsingum, meðal annars til þess í leiðinni að koma Ice Cup á framfæri. Að sjálfsögðu varð Facebook fyrir valinu fyrir þessa tilraun. Stofnuð hefur verið grúppa á Facebook og mótshöldurum í öðrum löndum boðið að setja þar inn upplýsingar og tengla á sín mót. Slóðin á þessa Facebook grúppu er: http://www.facebook.com/group.php?gid=58652083972#/posted.php?id=58652083972. Á Facebook eru jafnframt nokkrar aðrar grúppur sem tengjast krullunni, meðal annars ein þar sem hægt er að leita ráða hjá fagfólki.