Úrslit 4. flokks móts

Markakóngur mótsins með Pabba sínum.
Markakóngur mótsins með Pabba sínum.

Um helgina fór fram annað mótið af þremur sem telja til Íslandsmótsins í 4. flokki í Skautahöllinni á Akureyri. Lið SA sigraði í öllum sínum leikjum í mótinu og hafa unnið 7 af 8 leikjum í Íslandsmótinu.

Hér eru úrslit leikjanna í mótinu:

Laugardagur:

SA-Björninn 15-3

SR-Björninn 15-0

SA-SR 7-2

Sunnudagur:

SA-Björninn 9-0

SA-SR 7-2

SR-Björninn 5-2

Stigahæstu leikmenn leikmenn SA (mörk/stoðsendingar):

Unnar Hafberg 11/4

Hinrik Örn 4/5

Apríl Orongan 4/4

Heiðar Gauti 4/2

Kolbrún María 3/0

Sæþór Bjarki 3/0

Róbert Máni 2/2

Dagur Freyr 2/2