Úrslit kvenna hefjast í kvöld og mikil hokkíveisla framundan

Fyrsti leikur í úrslitum Hertz deildar kvenna fer fram í kvöld í Skautahöllinni á Akureyri en leikurinn byrjar kl 19.30. SA mætir þar Birninum en Ásynjur og Ynjur hafa nú sameinast undir nafni Skautafélagsins en þessi lið voru í efstu tveimur sætum deildarinnar en Björninn í því þriðja.

Það er mikil hokkíveisla framundan þar sem SA Víkingar mæta svo Birninum í síðasta leik Hertz deildar karla á þriðjudag. Annar leikur SA í kvenna úrslitunum er á miðvikudag syðra og svo byrjar úrslitakeppni karla hér heima á föstudag. Á laugardag er settur þriðji leikur í úrslitum kvenna ef til hans kemur og verður hann þá spilaður á Akureyri. Semsagt nóg af hokkí í þessari viku fyrir hokkíþyrsta en byrjum á því að styðja stelpurnar okkar til sigurs í kvöld!