Úrslit ráðin í 2. flokki

Ljósm. Sigurgeir Haraldsson
Ljósm. Sigurgeir Haraldsson

Keppnin í 2. flokki hefur verið spennandi í vetur og nú þegar keppnin er að klárast átti SA möguleika á því að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn, en til þess að það myndi gerast yrðu SR-ingar að vinna Björninn í kvöld og síðan þyrfti SA að vinna Björninn í síðasta leik á laugardaginn næsta hér heima.  Leik SR og Bjarnarins var hins vegar að ljúka í Reykjavík með sigri Bjarnarmanna sem tryggðu sér þar með Íslandsmeistaratitilinn.  Þar með eru úrslitin ráðin, SA lendir í 2. sæti og SR í því þriðja og úrslit síðasta leiks nú á laugardaginn breyta engu um þessa niðurstöðu.

Við óskum Bjarnarmönnum til hamingju með titilinn en vonumst jafnframt til að sjá þá á laugardaginn svo hægt sé að ljúka mótinu með skemmtilegum leik, þó lítið gildi hafi.