Úrslitakeppnin í íshokkí hefst á morgun

Úrslitakeppnin í íshokkí hefst annað kvöld, þriðjdaginn 12. mars kl. 19.30 í Skautahöllinni á Akureyri. SA Víkingar taka þá á móti Skautafélagi Reykjavíkur en SA Víkingar eru deildarmeistarar og byrja því á heimavelli. Vinna þarf þrjá leiki til þess að tryggja sér Íslandsmeistaratitlinn en leikið verður til skiptis heima og að heiman. Miðaverð er 1500 kr. en frítt inn fyrir 16 ára og yngri. Lemon og Exton verða á staðnum eins og í síðustu leikjum og við hvetjum fólk til þess að mæta í rauðu og litum þannig stúkuna í okkar lit. Áfram SA!

Leikirnir í úrslitakeppninni:

Leikur 1: Þriðjudaginn 12. mars á Akureyri.

Leikur 2: fimmtudaginn 14. mars í Reykjavík.

Leikur 3: laugardaginn 16. mars á Akureyri.

* 4. leikur 19. mars í Reykjavík.   

* 5 leikur 21. mars á Akureyri.

* (ef til koma)