Vantar sjálfboðaliða til að dreifa bæklingi þriðjudaginn 25 ágúst!

Nú vantar hokkídeildina aðstoð við að dreifa bæklingi í öll hús á Akureyri.  Þetta er auglýsngarbæklingur ætlaður til að heilla nýja iðkendur til að koma og æfa með okkur í vetur.

 

Dreifingin fer fram núna þriðjudaginn 25 ágúst, ég verð inn í skautahöll milli 17:00 og 18:00 og afhendi bæklinga og götur.

Það væri mjög gott ef þeir sem vilja fá sér hressingargöngu á þriðjudaginn hafi samband áður,  svo við vitum hve margir geta komið.  Margar hendur vinna létt verk og okkur vantar fleiri iðkenndur.

 

Hafið samand á netfangið mitt  annakristveig@hotmail.com eða gsm 840-6506

 

Anna Kristveig Arnardóttir