Vetrarmót ÍSS verður haldið á Akureyri um helgina

Vetrarmót ÍSS verður haldið á Akureyri um helgina þar sem LSA á 18 keppendur skráða til leiks.

Mótið hefst með opinberum æfingum seinni partinn á föstudaginn, en mótið hefst formlega á laugardagsmorguninn kl 8:00 með keppni í 8 ára og yngri B, Keppni í B flokkum lýkur um kl. 12.

Kl. 12:25 hefst svo keppni hjá Stúlknaflokki A - stutta prógrammið og um 13:30 er komið að stúlkunum í Unglingaflokki A.

Mótið heldur svo áfram á sunnudagsmorguninn kl. 8:00 með keppni í A flokkum.

Nánari upplýsingar um mótið er að finna á heimasíðu skautasambandsins www.iceskate.is

Við vonum að sem flestir komi við í höllinni og sjái flottu skautarana okkar á ísnum.