Ynjur kláruðu deildina með sigri

Úr leik liðanna fyrr á tímabilinu (mynd: Elvar P.)
Úr leik liðanna fyrr á tímabilinu (mynd: Elvar P.)

Ynjur tóku á móti Reykjavík í síðasta leik deildarinnar í meistaraflokki kvenna í gær, sunnudag. Ynjurnar voru búnar að tryggja sér deildarmeistaratitilinn fyrir leikinn og voru ekki alveg tilbúnar þegar flautað var til leiks. Þær gerðu mistök í vörninni strax á annarri mínútu og Reykjavíkurstúlkur notfærðu sér þau og skoruðu fyrsta mark leiksins. Það var svo ekki fyrr en eftir rúmar fimm mínútur að þær komust almennilega í gang og Silvía skoraði glæsilegt mark. Um fimm mínútum síðar bætti Berglind öðru marki við með stoðsendingu frá Sunnu eftir flott hraðaupphlaup. Stuttu síðar skoraði Ragnhildur síðan glæsilegt mark í yfirtölu með stoðsendingu frá Sunnu og Silvíu. Staðan eftir fyrstu lotu 3-1.

Ynjur sóttu mikið í annarri lotu en án árangurs. Þegar tæpar tvær mínútur voru eftir af lotunni fékk Hilma Bóel sturtudóm eftir árekstur við varnarmann Reykjavíkurliðsins en innan við hálfri mínútu síðar, meðan þær voru einni færri, skoraði Silvía glæsilegt mark eftir hraðaupphlaup og stoðsendingu frá Sunnu. Staðan í seinna lékhléi 4-1.

Þegar tæpar 5 mínútur voru liðnar af þriðju lotu átti Saga skot að marki Reykjavíkurstúlkna sem Guðlaug varði en Saga náði frákastinu og skoraði. Reykjavík náði að minnka muninn í 5-3 undir lok lotunnar, bæði mörkin komu eftir mistök í vörn Ynja. Sunna átti þó lokaorðið þegar hún þrumaði pekkinum í markið nánast frá bláu. Lokastölur 6-3.

Jussi Sipponen, þjálfari Ynja, leyfði „yngri deildinni“ að spreyta sig í leiknum og gekk það vel. Sólveig Lilja stóð sig vel í markinu og varði 19 skot (86%) meðan Guðlaug varði 46 (88%). Ynjurnar áttu góðar sóknir, spiluðu löngum stundum á milli eins og þær væru í yfirtölu en pökkurinn vildi ekki inn. Reykjavíkurstúlkur veittu fína mótspyrnu og sérstaklega gaman að sjá yngri stúlkurnar spila hjá þeim. Jussi var sáttur eftir leikinn og sagði að það hefði verið gott að enda deildina á sigri og ekki síður að geta spilað á þremur línum nánast allan leikinn.

Næsti leikur í skautahöllinni verður á þriðjudag kl. 19:45 þegar SA-liðin etja kappi í fyrsta leik í rimmunni um Íslandsmeistaratitilinn.

Mörk (stoðsendingar): Silvía 2 (3), Sunna 1 (3), Ragnhildur 1 (1), Saga 1 (1) og Berglind 1