3.flokks mót

Sú breyting hefur verið gerð á fyrirkomulagi Íslandsmótsins í 3.flokki að nú verða 4 helgarmót spiluð í staðinn fyrir staka leiki yfir leiktíðina eins og verið hefur.Til stóð að fyrsta mótið yrði hér á Akureyri um næstu helgi en það gat ekki gengið eftir vegna stutts fyrirvara, og stefnt er að því að 1. mótið verði spilað um miðjan næsta mánuð, en það verðu gefið út nánar seinna. Með gamla fyrirkomulaginu hefðu leikir hvers liðs orðið 8 en verða helmingi fleiri eða 16 með nýja fyrirkomulaginu.