Akureyri: Helgarmót í 4. flokki

Frá móti í 4. flokki 2006.
Frá móti í 4. flokki 2006.

Fyrsta helgarmótið hjá 4. flokki á þessari leiktíð fer fram í Skautahöllinni á Akureyri dagana 21.-23. september.

Fjögur helgarmót eru haldin í 4. flokki á hverjum vetri, þrjú eru liður í Íslandsmótinu, eitt haldið í hverri höll, og síðan eitt Bikarmót á Akureyri.

Mótið hefst á laugardagsmorgni, fyrsti leikur hefst kl. 8.20. Spilað er fram til kl. 13 með smá hléi vegna listhlaupsæfingar og síðan aftur frá kl. 15 og fram á kvöld. Lokaleikirnir eru svo á sunnudagsmorguninn og hefst fyrsti leikur þá kl. 7.40.

Leikjadagsrkáin og upplýsingar

Vegna mótsins verður opnun fyrir almenning á skautasvellið stytt á laugardaginn, aðeins verður opið kl. 13-15 á laugardag, en óbreytt á sunnudag, kl. 13-17 eins og venjulega.