5., 6. og 7.flokksmót í Egilshöll.

Um liðna helgi fóru yngstu hópar SA Fylktu liði til Reykjavíkur í Egilshöll í boði Bjarnarins á þriðja og síðasta barnamót vetrarins.
Ferðin tókst með afbrigðum vel og allir skemmtu sér hið besta og spiluðu hokkí af mikilli ákefð og gleði. SA krakkar stóðu sig afar vel og óskum við þeim til hamingju með frammistöðuna. SA þakkar SR og Bjarnar krökkunum fyrir keppnina og einnig þökkum við Birninum fyrir skemmtilegt mót og góðar móttökur.