Aðalfundur Krulludeildar: Stjórnin endurkjörin

 

Á fámennum aðalfundi Krulludeildar þann 21. maí sl. var stjórn deildarinnar endurkjörin. 

Um mánaðamótin júní-júlí var aftur hafin frysting í Skautahöllinni og kom krullufólk þá saman á "svellinu" til að merkja brautirnar fyrir næsta vetur. Ekki er þó reiknað með krulluæfingum alveg strax, heldur í kringum mánaðamótin ágúst-september eins og undanfarin ár.