Æfingahópur kvennalandsliðsins

Mynd: EFP
Mynd: EFP


Lars Foder, landsliðsþjálfari kvenna, hefur nú skorið niður æfingahóp kvennalandsliðsins sem undirbýr sig fyrir þátttöku á HM á Spáni í byrjun apríl.

Alls eru sextán leikmenn frá SA í æfingahópnum eins og hann er nú. Þetta eru þær Anna Sonja Ágústdóttir, Arndís Sigurðardóttir Eggerz, Birna Baldursdóttir, Eva María Karvelsdóttir, Guðlaug Ingibjörg Þorsteinsdóttir, Guðrún Kristín Blöndal, Hrund Thorlacius, Íris Hafberg, Jónína Guðbjartsdóttir, Katrín Ryan, Linda Brá Sveinsdóttir, Sarah Smiley, Silja Rún Gunnlaugsdóttir, Sólveig Gærdbo Smáradóttir, Thelma María Guðmundsdóttir og Védís Áslaug Veck Valdemarsdóttir.

Næstu æfingabúðir eru ráðgerðar á Akureyri um miðjan janúar.

Sjá frétt á vef ÍHÍ.