Æfingar á fimmtudagsmorgun

Á fimmtudagsmorguninn næsta, 26. febrúar, verður morgunæfingatímanum breytt. 

 

Morgunæfingin milli 06:15-07:30 verður færð þar til seinna um morguninn. Það er vetrarfrí í skólum og því verður æfing frá 11:30 til 12:15 fyrir 8 B, 10 B, 12 B og 10 A og 12:15 til 13:00 fyrir 12 A, 14 B, 15 B og Novice. Mæting er stundvíslega kl. 11:10 fyrir fyrri hópinn og 11:50 fyrir seinni hópinn, við hitum upp saman og svo verður hægt að renna yfir prógröm með tónlist á ís. Það er svo opinn tími á ís milli 13 og 15, endilega nýtið ykkur það líka ef áhugi er, tilvalið til að renna yfir pírúetta og vogarsamsetningar/sporasamsetningar. Munið að það er líka opinn tími fyrir almenning á miðvikudag milli 13 og 15, endilega nýtið ykkur það. Kv. Helga Margrét