Karfan er tóm.
Fjögur lið eru efst og jöfn að loknum þremur umferðum á Akureyrarmótinu í krullu.
Úrslit 3. umferðar:
Bragðarefir - Urtur 11-1
Garpar - Mammútar 2-8 (leikur spilaður 26. sept.)
Fífurnar - Team Tårnby 3-6
Bragðarefir, Garpar, Mammútar og Team Tårnby eru efst og jöfn að loknum þremur umferðum, öll með tvo sigra. Öll úrslit og leikjadagsrká í excel-skjali hér.
Fjórða og næstsíðasta umferðin verður spiluð mánudagskvöldið 15. október, en þá mætast:
Braut 2: Mammútar - Fífurnar
Braut 3: Urtur - Team Tårnby
Braut 4: Bragðarefir - Garpar
Ísumsjón: Fífurnar, Team Tårnby, Garpar