Akureyrarmótið í krullu: Garpar og Team Tårnby efst

Mynd: Haraldur Ingólfsson
Mynd: Haraldur Ingólfsson


Fjórða og næstsíðasta umferð Akureyrarmótsins í krullu fót fram í Skautahöllinni á Akureyri í kvöld. Garpar og Team Tårnby eru á toppnum með þrjá vinninga.

Úrslit kvöldsins:
Mammútar - Fífurnar  7-8
Urtur - Team Tårnby 7-8
Bragðarefir - Garpar  4-5

Fyrir lokaumferðina eru Garpar og Team Tårnby með þrjá vinninga, Bragðarefir og Mammútar með tvo og Fífurnar og Urtur með einn.

Öll úrslit og leikjadagskrá má sjá í excel-skjali (einnig í valmyndinni til vinstri).

Lokaumferð mótsins fer fram mánudagskvöldið 22. október, en þá mætast: 
Braut 2: Garpar - Urtur
Braut 3: Fífurnar - Bragðarefir
Braut 4: Team Tårnby - Mammútar
Ísumsjón: Urtur, Bragðarefir, Mammútar

Næsta krulluæfing verður miðvikudagskvöldið 17. október.