Aldís Kara Bergsdóttir íþróttakona Akureyrar annað árið í röð.

Aldís Kara Bergsdóttir
Aldís Kara Bergsdóttir

Aldís Kara Bergsdóttir er íþróttakona Akureyrar árið 2020. Þetta er annað árið í röð sem Aldís er kjörin besta íþróttakona Akureyar. Aldís setti stigamet íslenskra skautara á Norðurlandamóti á árinu og tryggði sér sæti á heimsmeistaramóti unglinga og varð þar með fyrsti íslenski skautarinn sem nær þeim árangri. Aldís tók svo þátt í heimsmeistaratmóinu sem fram fór í Tallinn og stóð sig frábærlega og náði 35. sæti af 48. keppendum.

Kraflyftingamaðurinn Viktor Samúelsson var kjörinn íþróttakarl ársins við sama tilefni og íshokkímaðurinn Ingvar Þór Jónsson varð fimmti í valinu á íþróttakarli ársins. Íshokkíkonan Hilma Bóel Bergsdóttir hlaut einnig afreksstyrk en afrekssjóður styrkti 10 afreksefni svo alls fengu 20 einstaklingar afreksstyrki fyrir rúmmlega 5 milljónir á athöfninni í gær.  Við óskum Aldísi Köru og öllu hinu íþróttafólkinu hjartanlega til hamingju með árangurinn.