Aldís Kara Bergsdóttir og Gunnar Aðalgeir Arason íþróttafólk SA 2021

Aldís og Gunnar (mynd: Ási ljósmyndari)
Aldís og Gunnar (mynd: Ási ljósmyndari)

Aldís Kara Bergsdóttir og Gunnar Aðalgeir Arason voru heiðruð nú í vikunni þar sem stund gafst milli stríða í þéttri dagskrá Aldísar Köru um þessar mundir en þau Aldís og Gunnar eru íþróttafólk SA árið 2021. Aldís var valin skautakona ársins hjá listhlaupadeild á dögunum og skautakona ársins hjá Skautasambandi Íslands árið 2021. Gunnar Arason var varinn íshokkímaður íshokkídeildar SA árið 2021. Gunnar og Aldís eru einstaklega vel að þessum titlum komin eru tilnefnd af SA til Íþróttafólks Akureyrar. Við óskum þeim Aldísi og Gunnari hjartanlega til hamingju með þessa nafnbót.