Aldís Kara Bergsdóttir og Ingvar Þór Jónsson íþróttafólk SA 2020

Íþróttafólk SA 2020 (mynd: Ási)
Íþróttafólk SA 2020 (mynd: Ási)

Aldís Kara Bergsdóttir og Ingvar Þór Jónsson voru í gærkvöld heiðruð sem íþróttakona og íþróttakarl SA fyrir árið 2020. Aldís Kara var valin bæði skautakona listhlaupadeildar á dögunum sem og skautakona ársins hjá Skautasambandi Íslands. Ingvar Þór var valinn íshokkímaður íshokkídeildar SA fyrir árið 2020. Þau eru tilnefnd af Skautafélaginu til íþróttafólks Akureyrar fyrir árið 2020 en kjörið fer fram í dag 20. janúar kl. 17.30 í Hofi. Síðustu ár hefur öllum bæjarbúum er boðið í hófið en vegna sóttvarnarreglna er hófið eingöngu fyrir boðsgesti í ár. Hér er hægt að sjá tilnefnínar tíu efstu í kjörinu en þau Aldís og Ingvar eru bæði á þeim lista.  Við óskum Aldísi og Ingvari hjartanlega til hamingju með þessa nafnbót.