Árlegt hóf Íþróttaráðs Akureyrar í dag


Íþróttaráð Akureyrar býður Íslandsmeisturum, landsliðsfólki og forystufólki íþróttafélaganna til hófs í Íþróttahöllinni á Akureyri kl. 16.15 í dag.

Eftirfarandi kemur fram í tilkynningu frá ÍRA:

Hin árlega úthlutun úr Afrekssjóði Akureyrar fer fram í hófi sem haldið verður í Íþróttahöllinni fimmtudaginn 27. desember kl. 16:15 þar sem afhent verða viðurkenningarskjöl Íþróttaráðs Akureyrar til hvers félags fyrir sig.

Árangur akureyskra íþróttamanna var góður á árinu. Samkvæmt upplýsingum sem borist hafa til stjórnar sjóðsins hafa 184 íslandsmeistaratitlar unnist á árinu og einnig voru margir Akureyringar valdir til leiks með landsliðum í hinum ýmsu íþróttagreinum.

Það er von Íþróttaráðs að þessir glæsilegu afreksmenn, þjálfarar þeirra og forystumenn íþróttahreyfinga á Akureyri sjái sér fært að koma til athafnarinnar.

Góðar veitingar verða fram bornar í boði Akureyrarbæjar.

Íþróttaráð Akureyrar.