Ásynjur - SR um helgina og Bautamót (dagskrá)

Um helgina fer fram Bautamótið í 4. flokki í Skautahöllinni. Leikið verður seinnipart laugardags og sunnudagsmorgun. Að venju verður BEINN NETSTRAUMUR á SA TV (0: tengill hérna uppi í hægra horninu :0)

Mótið er bikarmót og telur ekki í Íslandsmóti en nýtt fyrirkomulag verður prófað og leikirnir verða því styttri og fleiri en í Íslandsmótunum. Hér má sjá dagskrá Bautamótsins. Eftir Bautamótið á laugardag fer fram leikur í meistaraflokki kvenna þegar Ásynjur taka á móti SR en sá leikur hefst kl 20.15.