Atli kominn heim í SA

Atli Þór Sveinsson er kominn heim í SA eftir að hafa spilað í nokkur ár í Þýskalandi og Finnlandi. Atli er 19 ára varnarmaður uppalinn í SA en flutti ungur út til Þýskalands með fjölskyldu sinni og spilaði þar fyrir unglingalið stórliðsins Eisbären Berlín en síðasta vetur spilaði hann með U20 liði Roki í Finnlandi. Atli hefur spilað með fyrir öll unglingalið Íslands og á einnig 3 leiki með A-landsliðinu.  

Við bjóðum Atla velkominn heim og bíðum spennt eftir að sjá hann á ísnum en hann er skráður í Evrópuhóp SA Víkinga sem fer til Vilníus í Litháen í næstu viku og tekur þátt í Continental Cup.