Karfan er tóm.
Íslenska karlalandsliðið í íshokkí tekur þátt í a-riðli 2. deildar Heimsmeistaramótsins í íshokkí sem fram fer í Serbíu í apríl. Átta leikmenn frá SA eru í hópnum.
Landsliðsþjálfarinn Tim Brithén hefur valið landsliðshópinn sem fer til Serbíu, en átta leikmenn frá SA eru í hópnum: Andri Freyr Sverrisson, Björn Már Jakobsson, Ingólfur Tryggvi Elíasson, Ingvar Þór Jónsson, Ingþór Árnason, Jóhann Már Leifsson, Jón Benedikt Gíslason, Orri Blöndal og að auki Andri Már Mikaelsson, SA-maður sem nú leikur erlendis.
Liðið heldur utan í byrjun apríl, leikur tvo æfingaleiki, en síðan hefst mótið miðvikudaginn 9. apríl.
Frétt á vef ÍHÍ um landsliðið.