Karfan er tóm.
Leikur Bjarnarins og SA Víkinga verður sýndur beint í kvöld og verður hægt að horfa á hann í fundarherberginu í
Skautahöllinni ef áhugasamir vilja koma saman og njóta þess í góðum félagsskap að horfa á leikinn.
Í frétt á ruv.is í dag kemur fram að RÚV mun senda út streymi Borgarholtsskóla frá leiknum en hann verður einnig sendur út á Sjónvarpsstöð SportTV en hún er aðgengileg á rás 17 í sjónvarpi Símans og 800 í sjónvarpi Vodafone.
Skjárinn í fundarberberginu í Skautahöllinni er tengdur og klár ef fólk hefur áhuga á að horfa á leikinn í góðum félagsskap.
Leikurinn hefst kl. 19.00.