Bikarmót í 4. flokki í Skautahöllinni um helgina - (dagskrá)

Bikarmót 4. flokks fer fram í Skautahöllinni á Akureyri um helgina. Mótið hefst á laugardag kl 8.00 og verður spilað fram til kl 21 um kvöldið en hlé verður gert á dagskrá mótsins frá 13-16 þar sem verður opið fyrir almenning. Mótið klárast á sunnudag en leikið verður frá kl 8.00-12.50 og verðlaunaafhending og pizzuveisla í lok móts. SA sendir 3 lið til leiks í mótinu, SR 2 lið og Björninn 1. Hér má sjá dagskrá mótins. og hér má sjá LIVE straum frá mótinu.