Bikarmót ÍSS: 12 keppendur frá SA

Frá Haustmóti ÍSS. Mynd: Ásgrímur Ágústsson
Frá Haustmóti ÍSS. Mynd: Ásgrímur Ágústsson


Dagana 26.-28. október fer fram annað stóra listhlaupsmótið á þessu hausti á vegum Skautasambands Íslands, Bikarmót ÍSS.

Mótið fer fram í Egilshöllinni og þangað sendir Skautafélag Akureyrar að sjálfsögðu fríðan flokk keppenda. Samkvæmt keppendalistanum sem birtur hefur verið á vef ÍSS eru 12 keppendur frá SA.

Advanced Novice: Hrafnhildur Ósk Birgisdóttir, Elísabet Ingibjörg Sævarsdóttir, Guðrún Brynjólfsdóttir, Sara Júlía Baldvinsdóttir, Hulda Dröfn Sveinbjörnsdóttir, Arney Líf Þórhallsdóttir.
12 ára A: Emilía Rós Ómarsdóttir
8 ára A: Marta María Jóhannsdóttir 
Novice B: Harpa Lind Hjálmarsdóttir
12 ára B: Pálína Höskuldsdóttir
10 ára B: Aldís Kara Bergsdóttir
8 ára B: Rebekka Rós Ómarsdóttir

Á vef ÍSS má bæði finna keppendalistann og dagskrá mótsins (sem birt er með fyrirvara um breytingar sem gætu orðið):