Bikarmót Krulludeildar: Einn leikur í kvöld

Ice Hunt og Fífurnar mætast í kvöld.
Ice Hunt og Fífurnar mætast í kvöld.


Fimm lið eru skráð til leiks í Bikarmótinu og því fer aðeins einn leikur fram í fyrstu umferðinini, Fífurnar og Ice Hunt mætast. Garpar, Mammútar og Skytturnar fara beint í undanúrslitin.

Ákveðið var að draga núna síðdegis um það hvaða lið eiga að mætast þannig að fyrirliðar og liðsmenn allra liða viti með smá fyrirvara hvort þeirra lið myndi spila í kvöld eða ekki. Þar sem aðeins fimm lið skráðu sig til leiks eru það þrjú lið sem sitja yfir í fyrstu umferðinni, en tvö lið mætast og fer sigurliðið áfram í undanúrslitin ásamt þeim þremur sem sitja yfir.

Leikur kvöldsins:
Fífurnar - Ice Hunt

Vakin er athygli á því að leikir í Bikarmótinu eru 6 umferðir, nema úrslitaleikurinn sjálfur sem verður 8 umferðir.