Bikarmót Krulludeildar: Ice Hunt í undanúrslit

Davíð og félagar í Ice Hunt komnir í undanúrslitin
Davíð og félagar í Ice Hunt komnir í undanúrslitin


Fimm lið skráð til leiks. Einn leikur í fyrstu umferð. Ice Hunt áfram ásamt Görpum, Mammútum og Skyttunum.

Bikarmótið að þessu sinni er það fámennasta frá upphafi, aðeins fimm lið. það var því aðeins einn leikur í fyrstu umferðinni, en þrjú lið fara beint í undanúrslit, ásamt sigurliði úr leik fyrstu umferðarinnar. Fífurnar og Ice Hunt mættust sl. miðvikudagskvöl. Fífurnar höfðu frumkvæðið lengst af, en Ice Hunt náði að jafna leikinn með tveimur tvistum í lokaumferðunum og vinna svo í aukaumferð með þriðja tvistinum.

Úrslit (excel-skjal)