Karfan er tóm.
Ís-lendingar, Svartagengið, Víkingar og Útlagar í undanúrslit.
Fyrsta umferð Bikarmóts Krulludeildar fór fram í gær. Sjö lið skráðu sig til leiks í Bikarmótinu og var dregið til fyrstu umferðar fyrir leikina í gærkvöldi. Útlagar, samsett lið "afgangs" leikmanna sat hjá í fyrstu umferðinni og fer því beint í undanúrslit, en þrír leikir fóru fram í gær.
Úrslit fyrstu umferðar:
Fífurnar - Ís-lendingar 3-4
Fálkar - Svartagengið 5-6
Víkingar - Rennusteinarnir 9-1
Það verða því Ís-lendingar, Svartagengið, Víkingar og Útlagar sem leika í undanúrslitum miðvikudagskvöldið 7. desember. Dregið verður þá um kvöldið hvaða lið lenda saman.
Upplýsingar um gang leikjanna og fleira má sjá í excel-skjali hér.