Breytt plan á meðan Helga Margrét er í englandi

Helga Margrét er nú á leið til Englands að fylgja eftir henni Helgu Jóhannsdóttur sem er að keppa fyrir Íslands hönd. Á meðan hún er úti þjálfa Guðný og Óla að mestu leiti. Annars verða suma tíma einfaldlega einhverjir úr stjórn. Helga hefur hins vegar skilið eftir greinagott æfingaprógramm sem ætti að vera okkur hinum sem eftir sitjum nokkuð ljóst. Hér má sjá breytingarnar

Guðný Ósk þjálfar 3.4.5 hóp á Miðvikudaginn. Hóffa verður með 6. og 7 hóp á miðvikudaginn.
Sigrún Lind þjálfar 4. hóp á fimmtudag. MORGUNTÍMI Á FIMMTUDAG FELLUR NIÐUR! iðkendur mega mæta í staðinn næsta fimmtudagsmorgunn.

Óla þjálfar 3. 4. og 5. hóp á föstudag.
Hulda Gestsdóttir verður með 6. hóp á föstudag
Allý verður með 7. hóp á föstudag

Guðný og Óla þjálfa 3. og 4. hóp á laugardag. Allý verður í höllinni.

Krstín Þöll, Anna Guðrún og Hóffa skipta með sér æfingum á sunnudag fyrir og eftir hádegi.

Helga Margrét ætti að vera komin heim endurnærð frá vinum okkar í Englandi, á mánudag.