Emilía Rós fékk brons í Malmö

Emilía Rós Ómarsdóttir. Mynd: Donni.
Emilía Rós Ómarsdóttir. Mynd: Donni.


Fjórar SA-stelpur kepptu á Malmö International listhlaupsmótinu um helgina. Emilía Rós Ómarsdóttir náði þriðja sæti í sínum flokki.

Alls fóru níu þátttakendur frá Íslandi til þátttöku á Malmö International listhlaupsmótinu, þar af fjórar stúlkur úr röðum Skautafélags Akureyrar. Besta árangri íslensku keppendanna náði SA-stelpan Emilía Rós Ómarsdóttir, en hún varð þriðja í flokki sem kallas Springs Girls.

Árangur SA-stúlkna:

Advanced Novices 15 ára
20. sæti: Guðrún Brynjólfsdóttir, 54,05 stig.

Springs Girls
3. Emilía Rós Ómarsdóttir, 26,00

Advanced Novices 13 ára
20. Sara Júlía Baldvinsdóttir, 52,05
23. Hulda Dröfn Sveinbjörnsdóttir, 48,79

Öll úrslit á mótinu má finna hér.