Karfan er tóm.
Emilía Rós Ómarsdóttir hefur verið valin skautakona LSA 2016 og var hún heiðruð á jólasýningu listhlaupadeildarinnar á sunnudaginn.
Hún keppir í flokknum Unglingaflokkur A og er þetta hennar annað ár í Unglingaflokki A. Emilía hefur staðið sig vel á mótum hérlendis sem og erlendis en vert er að nefna að á Vetramóti ÍSS setti hún Íslandmet í stutta prógramminu og þar með á hún öll Íslandsmetin í Unglingaflokki. Emilía er einnig eini íslenski skautarinn sem hefur farið yfir 100 stiga múrinn. Emilía fór fyrir Íslands hönd á Junior Grand Prix sem haldið var í Tallinn í Eistlandi en Junior Grand Prix eru sterkustu mótin sem Ísland tekur þátt í og stóð hún sig ljómandi vel. Emilía Rós er einnig valin af Skautasambandi Ísland sem skautakona ársins 2016. Emilía Rós er samviskusamur íþróttamaður sem leggur sig fram í íþrótt sinni og er yngri iðkendum góð fyrirmynd bæði í framkomu og viðhorfi til íþróttarinnar. Við óskum henni til hamingju með nafnbótina.
Við óskum Emilííu Rós innilega til hamingju með titilinn og hlökkum til að fylgjast með henni á komandi árum.