Ert þú á póstlistanum?

Krullufólk getur fengið tölvupóst í hvert skipti sem ný frétt er sett inn á vefinn.

Krullufólk og aðrir áhugasamir lesendur heimasíðunnar geta skráð sig á póstlista Krulludeildar. Þegar ný frétt er skrifuð og vistuð á heimasíðuna fer tölvupóstur til þeirra sem eru á listanum og hægt að fara beint þaðan inn á vefinn til að lesa fréttina. Þannig getur fólk tryggt að það missi ekki af því þegar nýjar fréttir koma inn, auk þess sem þessi listi gerir Krulludeildinni auðveldara fyrir að koma skilaboðum til krullufólks og annara sem áhuga hafa á starfsemi deildarinnar.

Til að skrá sig á póstlista Krulludeildar þarftu bara að fara neðst á þessa síðu - í dálknum hægra megin geturðu sett inn netfangið þitt.