Karfan er tóm.
Næstu fræðslukvöld ÍSÍ! |
Fyrstu fræðslukvöld ÍSÍ í Reykjavík og á Akureyri samkvæmt nýju skipulagi fræðslusviðs vöktu mikla eftirtekt og mæting var mjög góð. Á þessum fyrstu tveimur 5 kennslustunda fræðslukvöldum var boðið upp á fyrirlestur um íþróttasálfræði og var mjög góður rómur gerður að efninu. Næstu fræðslukvöld verða í boði sem hér segir: Fimmtudagur 5. mars kl. 17.00-21.00 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í Reykjavík, næring íþróttafólks og lyf og íþróttir, tvær og hálf kennslustund hvort efni. Fyrirlesarar eru Fríða Rún Þórðardóttir næringarfræðingur og Örvar Ólafsson verkefnisstjóri hjá ÍSÍ. Fimmtudagur 12. mars kl. 17.00-21.00 á Akureyri, næring íþróttafólks og lyf og íþróttir, tvær og hálf kennslustund hvort efni. Fyrirlesarar eru Fríða Rún Þórðardóttir næringarfræðingur og Örvar Ólafsson verkefnisstjóri hjá ÍSÍ. Fimmtudagur 19. mars kl. 17.00-21.00 á Akureyri, íþróttameiðsl. Fyrirlesari Stefán Ólafsson sjúkraþjálfari. Fimmtudagur 26. mars kl. 17.00-21.00 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í Reykjavík, íþróttameiðsl. Fyrirlesari Róbert Magnússon sjúkraþjálfari. Fræðslukvöld þessi eru liður í þjálfaramenntun 2. stigs ÍSÍ en eru engu að síður öllum opin, s.s. iðkendum, stjórnendum, foreldrum og hverjum þeim sem áhuga hafa. Þátttökugjald er aðeins kr. 2.500.- Skráning er á namskeid@isi.is eða í 514-4000. Allar frekari uppl. eru gefnar hjá sviðsstjóra fræðslusviðs í síma 460-1467 eða á vidar@isi.is |