Fréttir af Junior Grand Prix (JGP).Marta María skautar tíunda á morgun í Kaunas

Marta María og Darja eru komnar til Kaunas í Litháen. Þær komu þangað í gærkvöldi. Í morgun fór Marta á æfingu og svo var dregið í keppnisröð. Marta María skautar tíunda á morgun, eða önnur í öðrum upphitunarhópi. Reikna má með hún dansi sitt prógram klukkan 19:08 á staðartíma eða klukkan 16:08 á íslenskum tíma.

Þess má til gamans geta að til leiks í Kaunas er mætt Alexandra Trusova frá Rússlandi sem sigraði JGP mótaröðina á síðasta ári. Hún mun skauta fyrst á morgun rúmlega þrjú á íslenskum tíma. Hún verður m.a. með 2 eða 3 fjórföld stökk í frjálsa prógramminu sínu sem þær skauta á föstudaginn.

Við fylgjumst öll spennt með, sendum Mörtu Maríu góða strauma til Kaunas og óskum henni góðs gengis og skemmtunar á mótinu.