Frostmótið um helgina (dagskrá og liðskipan SA)

Það verður líf og fjör í Skautahöllinni um helgina þegar Frostmótið fer fram en það er barnamót yngstu aldursflokkanna í íshokkí. Um 160 keppendur eru skráðir til leiks frá SA, SR og Birninum en spilað verður á laugardag frá kl 8.00-19.00 og svo aftur á sunnudag frá kl 7.50-12.50 en í lok móts verður verðlaunaafhending og pítsuveisla fyrir keppendur. Dagskrá mótsins má finna hér og liðskipan hjá SA liðunum hér.