Fyrsti leikur á morgun

SA spilar sinn fyrsta leik á Íslandsmótinu í meistaraflokki karla á morgun gegn Birninum í Egilshöllinni.  Reikna má með erfiðum leik fyrir okkar menn þar sem þeir reykvísku hafa sett saman öflugara lið en sést hefur lengi í Grafarvoginum.  Björninn er enn í sigurvímu eftir hraðmótið á dögunum og síðan stórsigur á Narfa í fyrsta leik mótsins nú á dögunum.SA liðið verður heldur fámennt, en góðmennt með Denna og Smiley á hliðarlínunni.  Tomas Fiala verður áfram með liðinu í vetur en ekki náðist að útvega leikheimild fyrir hann í tæka tíð þannig að hann verður heima á morgun.  En maður kemur í manns stað og mun Helgi LeCunt taka stöðu Fiala í framlínunni og fer væntanlega létt með það.