Krulla: Æfing í kvöld, þremur leikjum frestað


Í kvöld, mánudagskvöldið 5. nóvember, átti að fara fram 2. umferð Gimli Cup. Af ýmsum ástæðum hefur öllum þremur leikjum umferarðinnar verið frestað og því verður bara hefðbundin æfing í kvöld fyrir þá sem geta og nenna.

Leikir 2. umferðar - ákveðið og tilkynnt á næstu dögum hvenær þeir verða leiknir.
Braut 2: Urtur - Ice Hunt  
Braut 3: Skytturnar - Mammútar
Braut 4: Fífurnar - Garpar 

Ísumsjón: Ice Hunt, Mammútar, Garpar