Gimli Cup - dregið á miðvikudagskvöld

Átta lið taka þátt í Gimli Cup. Dregið verður um töfluröð fyrir úrslitaleikinn í Bikarmótinu.

Fyrir úrslitaleikinn í Bikarmótinu sem fram fer miðvikudagskvöldið 28. október verður dregið um töfluröð í Gimli Cup. Fulltrúar liðanna eru hvattir til að mæta. Átta lið hafa skráð sig til leiks. Nánar verður sagt frá keppnisfyrirkomulagi og reglum á næstu dögum. Excel-skjal með leikjadagskránni verður sett á vefinn áður en dráttur fer fram.