Hátt í 200 krakkar keppa í íshokkí þessa helgina

5., 6. og 7. flokkur keppa á stórmóti í Laugardalnum,

en frá SA fóru um 60 keppendur og rúmlega 30 fylgifiskar á tveimur stórum rútum eftir hádegi í gær. Mótið stendur frá föstudagskvöldi og fram á sunnudagshádegi.  Dagskrána mÁ skoða á SR-vefnum.

Á Akureyri er svo 3. flokks mót frá kl. 16,00 til 23,00 á laugardeginum og fyrir hádegi á sunnudag en það er það síðasta í Íslandsmótaröðinni þetta árið.