Heimsókn frá Framhaldsskólanum á Húsavík

Á föstudag kom stór hópur nemenda Framhaldsskólans á Húsavík í krullu

Þetta er einn af stærri hópum eða nálægt 50 manns sem komið hefur í krullu í einu, en þrátt fyrir það gekk allt að óskum og er það ekki síst að þakka krökkunum sjálfum sem sýndu mikla prúðmennsku og voru sjálfum sér og skóla sínum til sóma. Var ekki annað að sjá en að þau hafi skemmt sér vel þann tíma sem þau voru á svellinu. Sjá má myndir frá heimsókninni í "Myndasöfn" til vinstri á síðunni.