Hokkídeild SA með fullt hús titla

Uppskeruhátíð Hokkídeildar SA fór fram fyrir helgi þar sem tímabilið 2020/2021 var gert upp en það fer heldur betur í sögubækurnar sem eitt það allra besta hjá félaginu. Uppskera tímabilsins voru allir titlar sem í boði voru; Íslandsmeistaratitlar í meistaraflokkum karla og kvenna, U18, U16, U14 a- og b-liða ásamt báðum deildarmeistaratitlunum í meistaraflokkunum. Afrekið er algjörlega einstakt og allir leikmenn liðanna sem unnu titlana eru uppaldir í félaginu sem og Rúnar Freyr Rúnarsson aðalþjálfari liðanna.

Hokkídeild SA heiðraði Rúnar fyrir sitt framlag á uppskeruhátíðinni en uppskera tímabilsins er fullkomlega í samræmi við þá miklu vinnu sem Rúnar lagði í verkefnið en Hokkídeild SA stendur í þakkarskuld við hann fyrir að hafa tekið að sér þjálfun í vetur. Á uppskeruhátíðinni voru einnig leikmenn liðanna heiðraðir og einstaklings verðlaun veitt en það voru bæði leikmenn og þjálfarar sem stóðu að valinu.

MFL Kvenna

Mestu framfarir  - Amanda Ýr

Mikilvægasti leikmaður  - Saga Margrét

Besta fyrirmyndin  - Jónina Margrét

MVP úrslitakeppni  – Sunna Björgvinsdóttir

MFL karla

Mestu framfarir  - Andri Skúlason

Mikilvægasti leikmaður  - Axel Snær Orongan

Besta fyrirmyndin  - Orri Blöndal

MVP úrslitakeppni  – Jakob Ernfelt

u18

Mestu framfarir - Pétur Orri

Mikilvægasti leikmaður  - Arnar Helgi

Besta fyrirmyndin  - Bergþór Bjarmi

u16

Mestu framfarir  - Daniel Snær

Mikilvægasti leikmaður  - Uni Steinn

Besta fyrirmyndin  - Ormur Karl

U14

Mestu framfarir - Gabriel Snær

Mikilvægasti leikmaður - Þorleifur Rúnar

Vinnuhesturinn - Aðalheiður Anna

Unsung Hero - Bjarmi Kristjánsson

Besta fyrirmyndin - Aron Gunnar