Hokkífólk á suðurleið

Mynd: Elvar Freyr Pálsson
Mynd: Elvar Freyr Pálsson


Víkingar og Ásynjur heimsækja Reykjavíkurliðin í kvöld. Landsliðshelgi hjá kvennalandsliðinu.

Tveir leikir fara fram á Íslandsmótinu í íshokkí í kvöld. Í meistaraflokki karla fara Víkingar í Egilshöllina og mæta Húnum. Leikur liðanna hefst kl. 19.30. Í meistaraflokki kvenna eru það Ásynjur sem heimsækja SR í Laugardalinn og hefst leikur liðanna kl. 20.15.

Staðan í mfl. karla
Staðan í mfl. kvenna

Landsliðsæfingar
Núna um helgina fara einnig fram landsliðsæfingar hjá kvennalandsliðinu, en þar eigum við fjölmarga fulltrúa eins og flestum er kunnugt. Æfingabúðirnar hefjast snemma í fyrramálið (laugardag) og lýkur að morgni sunnudag. Dagskrá helgarinnar á vef ÍHÍ.