Hokkíleikir um komandi helgi hér á Akureyri

Um næstu helgi kemur Björninn norður með bæði Meistara og 3.flokk og spilar hvor flokkur 2 leiki gegn sömu flokkum SA. Fyrsti leikurinn verður á föstudagskvöldið kl.22,00 milli meistaraflokkanna. Næst spila 3.flokkarnir kl.08,00 á laugardagsmorguninn. Meistaraflokkarnir spila svo seinni leik sinn kl.18.00 á laugardeginum og seinni leikur 3.flokkanna er svo strax á eftir þeim leik, eða um kl.20,30 til 21,00.    Hokkíáhugafólk og aðrir velunnarar, látið nú eftir ykkur að njóta veislunnar þessa helgi og mætið og hvetjið ykkar menn.   ÁFRAM SA !!!!!!